Fara beint í efnið

12. ágúst 2021

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninga laugardaginn 25. september 2021

Almennar upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.

Alþingi

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna alþingiskosninga 25. september 2021 hefst föstudaginn 13. ágúst 2021. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum og útibúum allra sýslumanna og öðrum þeim stöðum sem nefndir eru eða vísað er til hér að neðan á þeim tíma sem tiltekinn er.

Athugið að upplýsingarnar geta breyst án fyrirvara.

Kosið verður á sjúkrahúsum, dvalarheimilum aldraðra, fangelsum og öðrum slíkum stofnunum samkvæmt nánari ákvörðun sýslumanns á hverjum stað í samráði við viðkomandi forstöðumenn. Verður það jafnframt birt hér á vefnum þegar það liggur fyrir og tilkynning hefur borist frá viðkomandi sýslumanni.  Aðeins er ætlast til að sjúklingar og vistmenn á stofnunum kjósi á þeim stofnunum sem um ræðir. 

Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Hún þarf að hafa borist hlutaðeigandi embætti sýslumanns eigi síðar en kl. 10:00 tveimur dögum fyrir kjördag eða fimmtudaginn 23. september kl. 10:00.

Athugið að öllum þeim sem eru skráðir á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er, óháð búsetu eða lögheimili.

Nánar um kosningu utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna má nálgast á vef sýslumanna.

Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á kosningavef dómsmálaráðuneytisins.