Fara beint í efnið

10. janúar 2022

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin vegna þrennra kosninga um sameiningu sveitarfélaga 19. febrúar 2022

Kosið um sameiningu sveitarfélaga í þrennum kosningum í febrúar.

kosningar

Laugardaginn 19. febrúar 2022 verður kosið um sameiningu sveitarfélaga í þrennum kosningum, sem  sem hér segir:

  1. Blönduósbær og Húnavatnshreppur.

  2. Eyja- og Miklaholtshreppur og Snæfellsbær.

  3. Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin hjá sýslumönnum og má greiða atkvæði á skrifstofum sýslumanna á auglýstum afgreiðslutíma á hverjum stað fram að kjördegi.

Þeim sem greiða ætla atkvæði ber að framvísa skilríkjum.

Atkvæðagreiðslan fer þannig fram að kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðil orðið ,,já" ef hann er hlynntur tillögu um sameiningu sveitarfélaganna en ,,nei" ef hann er mótfallinn tillögunni.

Tekið skal fram að samkvæmt lögum nr.137/2021 um breytingu á kosningalögum nr.112/2021 (atkvæðagreiðslur meðal íbúa sveitarfélaga) sjá hér,  sem tóku gildi 30. desember sl. segir að um framkvæmd atkvæðagreiðslna meðal íbúar sveitarfélaga á grundvelli 38. gr., 107. gr. og 119. gr. sveitarstjórnarlaga fari eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, og lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, eftir því sem við getur átt.