Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ástand bifhjóla

Ástand bifhjóla virðist misgott ef marka má niðurstöður skyndiskoðunar sem lögreglan, í samvinnu við Umferðarstofu og skoðunarstöðvar, stóð fyrir í vikunni. Rúmlega helmingur hjólanna, sem var tekin til skoðunar, reyndist í lagi en hin ekki. Aðfinnslur sneru einkum að pústkerfi hjólanna og ófullnægjandi skráningarmerkjum. Einnig voru gerðar athugasemdir ef vantaði spegla og stefnuljós, svo dæmi séu tekin.