Fara beint í efnið

29. apríl 2026

Ársfundur og Vísinda- og fræðadagur HSA 2026

Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Vísinda- og fræðadagur HSA verður haldin í Egilsbúð Neskaupstað föstudaginn 8. maí.

Allir velkomnir en einnig verður hægt að fylgjast með í streymi:

Ársfundur HSA

Vísinda- og fræðadagurinn

Dagskrá 8. maí 2026 – Egilsbúð Neskaupstað

Ársfundur HSA

  • kl. 10:30 Ávarp forstjóra, Guðjón Hauksson

  • kl. 10:40 Mannauðurinn, Þórarna Gró Friðjónsdóttir

  • kl. 10:50 Yfirferð ársreiknings, Svava I. Sveinbjörnsdóttir

  • kl. 11:00 Starfsemistölur og gæðaviðmið, Karólína Andrésdóttir

  • kl. 11:10 Erindi frá framkvæmdastjóra lækninga, Eyjólfur Þorkelsson

  • kl. 11:20 Fundarslit

kl. 11.30-12:50 Hádegishlé

Vísinda- og fræðadagur HSA

  • kl. 12:50 Vísinda- og fræðadagurinn settur - Birna Rún fundarstjóri

  • kl. 13:00 Ég bara missti kjarkinn: Reynsla kvenna á breytingarskeiði og líðan í starfi - Heiða Berglind, deildarstjóri hjúkrunardeildar HSA

  • kl. 13:30 Sjúkraflutningar – Guðmundur Guðmundsson, neyðarflutningamaður HSA

  • kl. 13:50 Heilsutengdar þarfir krabbameinsgreindra í dreifbýli og reynsla heilbrigðisstarfsfólks af því að veita þeim þjónustu - Þórhalla Ágústsdóttir, deildarstjóri dag- og göngudeildar HSA

  • kl. 14:20 Kaffihlé

  • kl. 14:40 Músík þerapía - Perla Kolka Leifsdóttir, músíkmeðferðafræðingur

  • kl. 15:10 Kyngingarvandi aldraðra - þverfagleg teymisvinna - Edda Óttarsdóttir, talmeinafræðingur HSA

  • kl. 15:40 Gusur og vellíðan - fyrir líkama og sál - Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir , Gusumeistari

  • kl. 16:00 Fundarslit