13. mars 2026
13. mars 2026
Ársfundur Erasmus+ 2026 – Færni til framtíðar
Markmið fundarins var að styðja við umræðu um stöðu færnimála á Íslandi og setja færniþróun fyrir framtíðina í forgrunn. Fjallað var um tækifæri og árangur í Evrópusamvinnu og sóttu gestir úr mennta-, æskulýðs- og íþróttastarfi fundinn.

Fundurinn sem bar yfirskriftina Færni til framtíðar, fór fram 5. mars 2026 í glæsilegu húsnæði Tækniskólans í Sjómannaskólanum við Háteigsveg.
Dagskráin samanstóð af erindum og þverfaglegum vinnustofum sem öll tóku fyrir ólíkar tegundir færni.
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+, flutti opnunarávarpið Enginn er eyland: Færni, tengsl og tækifæri í Erasmus+. Þar lagði hún áherslu á hvernig Erasmus+ og tengd verkefni styðja fólk á öllum æviskeiðum við að þróa færni og finna tilgang í námi, starfi og samfélagi:
Á vettvangi Evrópusamstarfs er áherslan á færniþróun orðin enn sýnilegri — meðal annars með framtakinu Union of Skills, sem leggur áherslu á að Evrópa verði staður þar sem fólk hefur raunveruleg tækifæri til að þróa færni. Við tökum fullan þátt í þeirri sýn hér á Íslandi, eins og við munum heyra um í dag. Markmiðið er að eiga samtal, heyra af árangursríkum leiðum til að efla færni með evrópskum styrkjum og að hugsa um okkar eigin sögu, eigin færniþróun eða eigið starf í þágu færni.
Dr. Jakob Frímann Þorsteinsson, lektor við Háskóla Íslands, flutti erindið Meira en spor í sandinn: Hvernig umhyggja og alþjóðleg reynsla eflir fólk og samfélag. Hann sagði frá hvernig alþjóðlegt nám og þátttaka í samfélagsverkefnum geta eflt lýðræðisvitund, aðlögunarhæfni og samskiptafærni og hvernig útivist og ævintýri þjálfa þrautseigju og einbeitingu.
Því næst tóku þátttakendur þátt í fjórum vinnustofum þar sem kafað var dýpra í stafræna færni í námi og kennslu, lýðræðis- og fjölmenningarfærni, færni fyrir nýsköpun og skapandi greinar og starfsþróun og færni á vinnumarkaði.
Að lokum flutti Veiga Dís Hansdóttir, húsasmiður og fulltrúi Félags fagkvenna, erindið Kunnátta er kraftur. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi fagmennsku og færni í námi og starfi og hvernig reynsla úr iðngreinum og kennslu sýnir að kunnátta byggist á æfingu, samvinnu og tækifærum til að vaxa. Einnig fjallaði hún um gildi alþjóðlegs samstarfs, þar á meðal í gegnum Erasmus+, sem gefur bæði nemum, kennurum og fagfólki nýja sýn og eflir faglegan þroska.
Landskrifstofa Erasmus+ vonar að ársfundurinn hafi styrkt þekkingu á evrópskum tækifærum og leiði af sér góðrar umsóknir um framtíðarverkefni sem geta haft jákvæð áhrif á færniþróun á Íslandi. Landskrifstofan þakkar öllum sem tóku þátt og sérstaklega Tækniskólanum fyrir frábærar móttökur í þessari merku byggingu sem á sér langa sögu í þróun færni á Íslandi.
Gestir fengu einnig að njóta flautuleiks frá nemendum Tónlistarskóla Kópavogs. Skólinn hefur verið öflugur í alþjóðastarfi og voru þessir nemendur nýkomnir frá Sikiley úr Erasmus+ ferð.
Hægt er að horfa á upptöku frá fyrsta hluta ársfundarins hér:
https://www.erasmusplus.is/frettir-og-vidburdir/frettir/taktu-daginn-fra



