Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. desember 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Áríðandi tilkynning frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum

Reykjanesbrautin er lokuð!

Reykjanesbrautin er lokuð allri umferð. Fylgdarakstri hefur verið hætt á Reykjanesbrautinni og veginum alveg lokað. Við biðjum ökumenn um að virða lokanir og halda sig heima.

Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöð í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ. Þangað geta allir leitað sem hafa ekki í nein hús að venda eða hafa orðið veðurtepptir.