4. janúar 2007
4. janúar 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Árásarmennirnir gáfu sig fram
Þremenningarnir, sem leitað var vegna mjög alvarlegrar líkamsárásar í Reykjavík á nýársnótt, gáfu sig fram hjá lögreglunni í gærkvöld. Þeir hafa viðurkennt hlut sinn í málinu. Árásarmennirnir eru allir undir tvítugu. Þeir hafa lítillega komið við sögu áður hjá lögreglu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill þakka góð viðbrögð við myndbirtingu af árásarmönnunum. Ljóst er að upptaka úr öryggismyndavél vó þungt við rannsókn málsins.