5. apríl 2026
5. apríl 2026
Appelsínugul veðurviðvörun og áfram óvissa í Grindavík
Veðurstofan hefur gefið út gula og svo appelsínugula viðvörun fyrir allt landið á morgun og þar með talið Reykjanesið vegna slæmrar veðurspár frá kl 10-22 á morgun 06.04.2026. Gert er ráð fyrir hríðarveðri í upphafi með slæmu skyggni og snjókomu með tilheyrandi ófærð sem getur fylgt. Eftir það verður slydda og í kjölfarið töluverð rigning en veður gengur ekki almennilega niður fyrr en um kvöldið. En búast má við samgöngutruflunum frá 12-19 á morgun meðan enn er hríðarveður.

Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast náið með veður- og færð á vef Vegagerðarinnar umferdin.is og á vef Veðurstofu Íslands vedur.is áður en lagt er af stað og gefa sér ríflegan tíma í ferðalög. Eins eru farþegar á leið til Keflavíkurflugvallar beðnir um að fylgjast með flugáætlun flugfélaganna á vefsíðu þeirra og heimasíðu Isavia.
Vanbúnir bílar eiga ekki að fara af stað.
Tryggja þarf að ökutæki séu vel útbúin vetrarhjólbörðum, nægu eldsneyti og tilbúnir í vetrarfærð á vegum á svæðinu og ekki leggja af stað af óþörfu.
Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík
Óvissa um eldgos með áframhaldandi landrisi og jarðhræringar halda áfram á svæðinu í kringum Grindavík og Svartsengi.
Viðbragðsaðilar verða með aukið viðbragð meðan óvissa með veður er til staðar. Vakt slökkviliðs verður aukin ásamt því að björgunarsveit verður kölluð til ef þurfa þykir.
Þar sem enn ríkir óvissa með jarðhræringar og landris mælist enn undir Svartsengi með mögulegri eldgosshættu, er almenningi, ferðamönnum og íbúum svæðisins ráðlagt til að kynna sér vel aðstæður og að það gæti komið til þess að flóttaleiðir frá bænum lokist með stuttum fyrirvara. Því getur verið varasamt að vera á ferðinni meðan veður gengur yfir.
Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Lögreglunni á þeirra miðlum.
Samantekt:
Gul viðvörun tekur gildi kl 10 með hríðarveðri.
Appelsínugul viðvörun tekur gildi kl 14 – fylgstu með veður- og færð áður en lagt er af stað.
Farðu ekki af stað á vanbúnum bílum.
Hafðu hlý föt, mat og drykk í bílnum ef tafir verða.
Gefðu þér góðan tíma í ferðalög.
Í Grindavík gæti komið til að flóttaleiðir lokist með stuttum fyrirvara. Ekki vera þar nema nauðsyn er.
Fylgstu vel með opinberum tilkynningum á helstu síðum