Fara beint í efnið

25. maí 2022

Apabóla – leiðbeiningar fyrir almenning

Í ljósi útbreiðslu apabólu smita í Evrópu undanfarið þá eru líkur á að smit berist hingað til lands og jafnvel að litlar hópsýkingar geti brotist hér út.

Landlæknir logo

Í ljósi útbreiðslu apabólu smita í Evrópu undanfarið þá eru líkur á að smit berist hingað til lands og jafnvel að litlar hópsýkingar geti brotist hér út. Hversu miklar líkur eru á að slíkt gerist er erfitt að segja til um en hins vegar er ólíklegt að hér brjótist út stór faraldur með víðtækum alvarlegum afleiðingum.

Berist sjúkdómurinn hingað er nauðsynlegt fyrir almenning að vera upplýstur um sjúkdóminn, smitleiðir, áhættuhegðun og persónubundnar sóttvarnir til að lágmarka útbreiðslu hér á landi. Þeir sem hafa einkenni og grun um sjúkdóminn eru hvattir til að hafa samband við heilbrigðisþjónustuna varðandi greiningu. Heilbrigðiskerfið er að undirbúa sín viðbrögð, móttöku sjúklinga, greiningu og hugsanlega meðferð.

Sóttvarnalæknir hefur gefið út leiðbeiningar fyrir almenning með upplýsingum um apabólu og viðbrögð. Veikindin eru venjulega væg og meðferð því fyrst og fremst stuðningsmeðferð en hinn sýkti þarf hins vegar að vera í einangrun þangað til útbrotin hafa gróið. Það ferli getur tekið allt að 4 vikur þó 2–3 vikur sé algengast. Þeir sem hafa verið í nánd við smitaðan einstakling og teljast því útsettir þurfa að halda sig sem mest til hlés í 3 vikur (smitgát) þangað til sýking hefur verið útilokuð. Sjá nánari upplýsingar fyrir almenning og leiðbeiningar um einangrun og smitgát.

Sóttvarnalæknir