24. maí 2024
24. maí 2024
Ánægjulegt að vinna með mömmu
Starfsfólk sem lætur af störfum vegna aldurs var heiðrað á ársfundi SAk sem fram fór í dag. Um var að ræða 10 manns sem hafa mörg hver starfað á sjúkrahúsinu til fjölda ára.
„Það var gaman að stýra ársfundi þar sem mamma mín var heiðruð fyrir hennar ötula starf í þágu sjúkrahússins. Við unnum nú meira að segja saman á skurðlækningadeildinni bæði fyrir og eftir sérnám mitt sem var afskaplega ánægjulegt og gefandi held ég fyrir okkur bæði,“ sagði Helgi Þór Leifsson, fundarstjóri og framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu.
Sjúkrahúsið á Akureyri metur allt sitt starfsfólk mikils og á síðasta ári hefur stuðningur við starfsfólkið verið í miklum fókus. „Við innleiddum velferðartorg og erum eins og svo margar aðrar heilbrigðisstofnanir að glíma við miklar áskoranir í mönnun, þeim mun mikilvægara er það fyrir okkur að þakka okkar einvala starfsfólki fyrir vel unnin störf áður en það heldur á vit nýrra ævintýra á bestu árunum,“ sagði Hulda S. Ringsted framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Starfsfólkið fékk fallegt kort úr smiðju Vorhús en einnig smá þakklætisvott í formi gjafabréfs og peningainneignar.
Þau sem voru heiðruð voru:
Bryndís Reynisdóttir, bráðamóttaka
Auður Helga Hjaltadóttir, skrifstofa fjármála
María Þórðardóttir, ræstimiðstöð
Elísabet Gestsdóttir, vörulager
Margrét Sigtryggsdóttir, ræstimiðstöð
Björg Brynjólfsdóttir, rannsóknadeild
Vinbjörg Ásta Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfun
Fanney Friðriksdóttir, lyflækningadeild
Guðrún Bjarney Leifsdóttir, rannsóknadeild
Hjördís Gunnarsdóttir, rannsóknadeild
Sjúkrahúsið á Akureyri þakkar kærlega fyrir ötula vinnu í þágu sjúkrahússins og óskar öllu fráfarandi starfsfólki alls hins besta á nýju æviskeiði.