Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. maí 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Alvarlegt umferðarslys á þjóðvegi 1 undir Eyjafjöllum

Uppfært kl. 14:00

Búið er að opna fyrir umferð um Þjóðveg 1 undir Eyjafjöllum en búast má við einhverjum töfum þegar ökutækið verður híft á pall.

Eldra:

Nú er verið að flytja ökumann fólksbifreiðar sem lenti út af þjóðvegi 1 skammt vestan Efra Bakkakots undir Eyjafjöllum. Slysið var tilkynnt kl. 11:08 í morgun og viðbragðsaðilar þá strax kallaðir til, annarsvegar frá Vík og hins vegar úr vestri. Þyrla reyndist ekki tiltæk í flutninginn.

Rannsóknarlögreglumenn og rannsóknarnefnd samgönguslysa eru nú við vinnu á vettvangi. Vegurinn er lokaður en hjáleið um Raufarfellsveg.