Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Alvarleg líkamsárás í miðborginni – gæsluvarðhald til 30. ágúst

Sextán ára piltur var í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni í gærkvöld. Eins og fram hefur komið er hann grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborginni í gærkvöld, en tilkynning um málið barst lögreglu um hálftólfleytið og var hún með mikinn viðbúnað vegna málsins. Sökum ungs aldurs verður pilturinn vistaður með viðeigandi hætti á meðan gæsluvarðhaldið varir. Ungmennin, sem urðu fyrir árásinni, voru öll flutt á slysadeild, en eitt þeirra slasaðist mjög alvarlega og er í lífshættu.