Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Alvarleg líkamsárás í miðborginni

Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi Lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni í nótt. Tilkynning um málið barst lögreglu um fjögurleytið og hélt hún þegar á vettvang, en sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á slysadeild. Brotaþoli er einnig karlmaður á þrítugsaldri, en ástand hans er mjög alvarlegt. Meintur árásarmaður var handtekinn skammt frá vettvangi, en krafist verður gæsluvarðhalds yfir honum síðar í dag.

Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt veita frekar upplýsingar að svo stöddu.

Lögreglan mun senda frá sér frekari upplýsingar um málið eftir því sem rannsókn þess vindur fram.