Fara beint í efnið

29. september 2026

Alvarleg líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishúss í Kópavogi í gærkvöld.

Maðurinn, sem var handtekinn á vettvangi, er grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri, sem var í íbúðinni. Hún var flutt á slysadeild, en áverkar hennar eru alvarlegir. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag.