23. nóvember 2023
23. nóvember 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Alvarleg líkamsárás í Fangelsinu Litla-Hrauni
Skömmu fyrir klukkan 14:00 í dag barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um að fangi í Fangelsinu Litla-Hrauni hafi orðið fyrir alvarlegri líkamsárás af hálfu annars fanga. Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru á vettvang og var sá er fyrir árásinni varð fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrastofnun til aðhlynningar. Rannsókn málsins er á frumstigi og verða frekari upplýsingar um málið ekki veittar að sinni.