Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. maí 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Alvarleg líkamsárás í Breiðholti – gæsluvarðhald til 25. júní

Sautján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 25. júní, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Breiðholti í síðasta mánuði. Pilturinn er vistaður á viðeigandi stofnun.

Rannsókn málsins miðar vel.