Fara beint í efnið

27. mars 2026

Alvarleg líkamsárás – áframhaldandi gæsluvarðhald

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku.

Einn til viðbótar situr í gæsluvarðhaldi vegna sama máls, en sá var einnig úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald í fyrradag, líkt og fram hefur komið.

Rannsókn málsins, sem er mjög umfangsmikil, miðar vel.