30. ágúst 2024
30. ágúst 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Alvarleg líkamsárás – áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. september
Sextán ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. september á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni um síðustu helgi. Hann er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni, tvær stúlkur og einn pilt, með hnífi, en önnur stúlknanna slasaðist mjög alvarlega og er enn í lífshættu.
Rannsókn málsins miðar vel.