Fara beint í efnið

28. júlí 2022

Alþjóðlegur dagur lifrarbólgu

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) vekur athygli á veiru lifrarbólgu þann 28. júlí ár hvert. Bólga í lifur af völdum veira getur leitt til alvarlegra sjúkdóma og lifrarkrabbameins.

Landlæknir logo

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) vekur athygli á veiru lifrarbólgu þann 28. júlí ár hvert. Bólga í lifur af völdum veira getur leitt til alvarlegra sjúkdóma og lifrarkrabbameins. Þúsundir barna, ungmenna og fullorðinna veikjast árlega vegna bráðra lifrarbólgusýkinga af völdum veira. Þar eru best þekktar fimm lifrarbólguveirur: A, B, C, D og E.

Flestar bráðar lifrarbólgusýkingar valda vægum sjúkdómi eða eru jafnvel ógreindar. En í sumum tilfellum geta þær leitt til fylgikvilla og verið banvænar. Árið 2019 eitt og sér voru áætluð 78.000 dauðsföll í heiminum vegna fylgikvilla bráðrar lifrarbólgu af völdum lifrarbólguveira A til E.

Alþjóðasamfélagið hefur sett í forgang að útrýma lifrarbólgusýkingum B, C og D. Ólíkt bráðri veiru lifrarbólgu geta þessar þrjár veirur leitt til langvinnrar lifrarbólgu sem hrjáir fólk í áratugi og veldur yfir einni milljón dauðsfalla á ári í heiminum af völdum skorpulifrar og lifrarkrabbameins.

Á alþjóðlega lifrarbólgudeginum 2022 leggur WHO áherslu á nauðsyn þess að fólk hafi betri aðgang að meðferð og umönnun, sama hvaða tegund lifrarbólgu það kann að vera með.Með samstilltu átaki landa stefnir WHO að því að útrýma lifrarbólgu fyrir árið 2030.

Sóttvarnalæknir