8. febrúar 2007
8. febrúar 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Alþjóðlegur barnaklámhringur
Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú einn anga af alþjóðlegum barnaklámhring, sem hefur verið upprættur, en hann teygði anga sína til Íslands. Rannsóknin hér á landi hófst fyrir áramót og stendur enn. Upplýsingar um málið bárust íslenskum lögregluyfirvöldum frá Interpol í október sl. Í framhaldinu hefur lögreglan lagt hald á tölvugögn sem nú eru til rannsóknar. Yfirheyrslur hafa farið fram.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.