18. mars 2026
18. mars 2026
Alþjóðlegt námskeið um náms- og starfsráðgjöf í dreifbýli haldið á Akureyri
Námskeiðið var hluti af svokölluðu Academia prógrammi sem Euroguidance býður náms- og starfsráðgjöfum í Evrópu þátttöku í á hverju ári. Ísland tók nú þátt í fyrsta skipti eftir langt hlé.

Námskeiðið stóð yfir dagana 10.-13. mars síðastliðinn og var á vegum Félags náms- og starfsráðgjafa á Íslandi með stuðningi Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar – Euroguidance á Íslandi.
Alls sóttu námskeiðið tíu náms- og starfsráðgjafar frá Noregi, Frakklandi, Sviss, Lettlandi, Írlandi, Lúxemborg, Spáni, Þýskalandi, Svíþjóð og Rúmeníu.
Námskeiðið fjallaði um hvernig efla megi náms- og starfsráðgjöf í dreifbýli og var markmiðið að styrkja hæfni þátttakenda til að veita hagnýta ráðgjöf í smærri samfélögum og á afskekktum svæðum, meðal annars með notkun stafrænnar tækni og nýsköpunar í þjónustu.
Á námskeiðinu var sérstaklega litið til helstu áskorana og tækifæra við að veita náms- og starfsráðgjöf utan stærstu þéttbýlissvæða, bæði á Íslandi og í evrópsku samhengi. Þátttakendur kynntu sér mismunandi kerfi og starfshætti milli landa og unnu að hugmyndum að verkefnum sem stuðla að jöfnu aðgengi að ráðgjöf óháð búsetu.
Dagskráin hófst 10. mars með óformlegri samveru þátttakenda. Daginn eftir fór formleg dagskrá fram við Háskólann á Akureyri þar sem þátttakendur heimsóttu Háskóladaginn, fengu upplýsingar um nemendaráðgjöf HA og leiðsögn um skólann, auk þess að vinna verkefni tengt vefnum Næsta skref sem veitir upplýsingar um nám og störf á Íslandi.
Þann 12. mars heimsóttu þátttakendur Framhaldsskólann á Laugum þar sem Hallur Birkir Reynisson áfangastjóri kynnti uppbyggingu náms við skólann. Þessu næst var haldið til Húsavíkur á Stéttina þar sem starfsfólk Þekkinganets Þingeyinga tók vel á móti hópnum. Þær Guðrún Helga Ágústsdóttir og Lilja Berglind Rögvaldsdóttir kynntu starfsemina og sögðu mikilvægi símenntunar fyrir atvinnulíf svæðisins og verkefni tengd námsleiðum og raunfærnimati. Einnig fékk hópurinn skemmtilega kynningu á Fab Lab-i Húsvíkinga.
Síðasta daginn fylgdust þátttakendur með störfum ráðgjafa á vettvangi hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Að lokum voru pallborðsumræður um mikilvægi náms- og starfsráðgjafar í dreifbýli. María Jónsdóttir náms- og starfsráðgjafi við HA, Hekla Pálmadóttir nemandi í Iðjuþjálfun við HA og Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu og frambjóðandi Samfylkingarinnar á Akureyri í næstu sveitarstjórnarkosningum, fluttu mjög áhugaverð erindi. Í framhaldinu voru góðar umræður um næstu skref í þróun ráðgjafarþjónustu sem getur tryggt fólki jafnt aðgengi að upplýsingum og stuðningi við náms- og starfsval, óháð búsetu.

