2. apríl 2025
2. apríl 2025
Alþjóðleg lögregluaðgerð – tveir handteknir á Íslandi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum þar sem tekin var niður vefsíða, Kidflix, en á henni var að finna barnaníðsefni.

Aðgerðin náði til á fjórða tug landa, en fyrir henni fóru lögregluyfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi með fulltingi Europol. Vegna þessa voru tveir menn handteknir á höfuðborgarsvæðinu, en ráðist var í húsleit í híbýlum þeirra beggja og lagt hald á búnað í þágu rannsóknarinnar.
Nálægt tvær milljónir notenda höfðu skráð sig inn á umrædda síðu undanfarin þrjú ár, en á henni var að finna um 72 þúsund myndbönd þegar lögreglan lét til skarar skríða og lokaði síðunni.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Europol: Global crackdown on Kidflix, a major child sexual exploitation platform with almost two million users | Europol