Fara beint í efnið

1. júní 2026

Allt framhaldsskólanám á Íslandi á sama stað – framhaldsskolanam.is

Nýr vefur mennta- og barnamálaráðuneytisins, framhaldsskolanam.is, hefur verið tekinn í notkun. Þar eru í fyrsta sinn birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavænu viðmóti. Birtingin er liður í aðgerðum stjórnvalda að bæta yfirsýn yfir menntakerfið og auka stafræna þjónustu.

Vefurinn er hluti af Ísland.is og er unninn í samstarfi við Stafrænt Ísland, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Origo og Apró. Hann markar mikilvægt skref í bættri upplýsingagjöf um viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla fyrir menntayfirvöld, skólameistara og kennara, jafnt sem nemendur og foreldra.

Nýr námsbrautagrunnur

Samhliða birtingunni hefur nýr námsbrautagrunnur framhaldsskóla verið tekinn í notkun. Námsbrautagrunnurinn er vinnu- og umsýslukerfi fyrir framhaldsskóla og stjórnsýslu. Þaðan eru upplýsingar um námsbrautir birtar á framhaldsskolanam.is.

Námsbrautagrunnurinn hefur verið þróaður undanfarna mánuði í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Apró með áherslu á samræmda yfirsýn, örugga gagnavinnslu og möguleika á frekari þróun og samtengingum við önnur kerfi s,s, nýja innritunargátt fyrir umsækjendur um framhaldsskólanám sem tekin var í notkun í fyrra.

Í námsbrautagrunninum geta framhaldsskólar meðal annars skoðað viðurkenndar námsbrautir sínar, sótt um viðurkenningu nýrra námsbrauta og tekið upp námsbrautir sem þegar hafa verið viðurkenndar í kerfinu.

Áframhaldandi þróun

Viðurkenndar námsbrautir sem nú eru birtar á vefnum eru um fjögur hundruð í 37 skólum. Vinna stendur yfir í mennta- og barnamálaráðuneytinu að útbúa viðmiðunarbrautir fyrir framhaldsskólastigið og er samræmd STEM námsbrautalýsing í vinnslu. Samræming viðmiðunarbrauta mun leiða til þess að brautir með sömu sérhæfingu verða samræmdar í uppbyggingu milli framhaldsskóla sem mun leiða til fækkunar námsbrauta í heild.

Framhaldsskólar eru hvattir til að kynna sér nýja umhverfið og senda ábendingar um virkni og framsetningu fyrir 10. júní nk. á netfangið mrn@mrn.is. Endurgjöfin verður nýtt við áframhaldandi þróun kerfisins.