13. október 2010
13. október 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Akstur á móti umferð – Bankastræti og Laugavegur
Athygli lögreglu var í vikunni vakin á þættinum Auddi og Sveppi sem sendur var út á Stöð 2 síðastliðið föstudagskvöld, en þar ók þáttastjórnandi bifreið til austurs Bankastræti og Laugaveg á móti umferð auk þess að aka ítrekað upp á gangstétt.
Lögregla bendir á þá slysahættu sem í umferðinni er og harmar svo ábyrgðarlaust atferli sem þáttastjórnandinn þarna sýndi.
Viðkomandi mætti samkvæmt boðun til skýrslutöku hjá lögreglu í dag vegna málsins. Hann játaði brot sitt og má búast við að þurfa að sæta sektum vegna þessa.