Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. júlí 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Áhesluverkefni um notkun öryggisbelta

Áhersluverkefni um notkun öryggisbelta.

Lögregluliðin á suðvesturlandi stóðu í liðinni viku, dagana 19. og 20. júlí, fyrir áhersluverkefni, er varðaði notkun öryggisbelta í bifreiðum. Mikill fjöldi ökutækja var stöðvaður og ástand kannað. Sem betur fer virðist þorri ökumanna nota öryggisbelti við akstur, en þó ber á að í innanbæjarakstri séu beltin síður notuð, en þegar ekið er á þjóðvegum.

Þessa tvo daga, 19. og 20. júlí voru alls 47 ökumenn kærðir vegna þess að þeir notuðu ekki öryggisbelti við aksturinn.

Lögregluliðin á suðvestulandi munu áfram vinna að eftirliti með notkun á öryggisbeltum og einnig á öryggisbúnaði barna í bifreiðum.