7. desember 2021
7. desember 2021
Þessi frétt er meira en árs gömul
Áherslur lögreglunnar á Austurlandi í desember, – notkun endurskinsmerkja, öryggisbúnaður ökutækja og ástand ökumanna
Lögregla hvetur vegfarendur á Austurlandi til að gæta vel að sér í svartasta skammdeginu, en nokkuð hefur borið á umferðaróhöppum og slysum upp á síðkastið. Vekur hún athygli á mikilvægi þess að gangandi beri endurskinsmerki á fatnaði sínum og ekki síður að akandi hugi að öryggisbúnaði bifreiða sinna; að rúður séu hreinar, dekkjabúnaður í samræmi við aðstæður og ljósabúnaður í lagi.
Lögregla mun sem fyrr freista þess þess að vera sýnileg við eftirlit í umdæminu með það markmið að vekja athygli vegfarenda og hvetja þannig til aðgæslu í hvívetna. Hún mun og kanna skipulega með ástand og búnað ökutækja sem og ástand ökumanna.
Förum varlega í jólamánuðinum og tryggjum þannig í sameiningu að allir komist heilir heim.