Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. ágúst 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ágreiningur – Hótun um að beita skotvopni.

Kl.02:23 í nótt barst lögreglunni á Vestfjörðum tilkynning um að ágreiningur hafi orðið meðal áhafnarmeðlima um borð í erlendri skútu, er lá þá við bryggju á Suðueyri. Um borð voru alls 5 erlendir áhafnarmeðlimir. Einn áhafnarmeðlimanna hafði hótað að beita skotvopni. Ljóst var að skotvopn, fleiri en eitt voru um borð í skútunni á þessum tíma. Þrír áhafnarmeðlimana fóru frá borði en tveir urðu eftir. Annar þeirra sem eftir varð um borð hafði haft í þessum hótunum.

Fimm lögreglumenn fóru þá þegar á vettvang, búnir viðeigandi varnarbúnaði og vopnum. Á sama tíma var kallað eftir aðstoð sérsveitar. Lögreglumenn á vettvangi tryggðu aðstæður meðan beðið var sérsveitar. Þyrla LHG flutti sérsveitarmenn vestur og í framhaldi komu þeirra, eða kl.06:40, var farið um borð í skútuna og sakborningur handtekinn. Hann var færður í fangageymslu á Ísafirði. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum.

Skúta þessi mun hafa komið til hafnar á Suðureyri um kl.21:00 í gærkveldi.