Fara beint í efnið

22. júní 2026

Afskipti af aðila vegna gruns um fíkniefnamisferli

Fyrir helgi höfðu lögreglumenn afskipti af aðila í umdæminu vegna gruns um fíkniefnamisferli.

Við nánari skoðun fundust kannabisplöntur í húsnæði á vegum aðilans. Jafnframt fundust fjármunir sem grunur var um að væri afrakstur fíkniefnasölu og vopn. Aðilinn var þá handtekinn vegna rannsóknar málsins en látinn laus að lokinni yfirheyrslu.