Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. júlí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. ágúst

Karl um fertugt var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann unir niðurstöðunni. Maðurinn var handtekinn á veitingahúsi í miðborginni fyrir hálfum mánuði en þangað var lögreglan kölluð vegna líkamsárásar. Sá sem fyrir henni varð, karl á fimmtugsaldri, hlaut lífshættulega áverka og lést af þeirra völdum fyrr í vikunni.