20. desember 2020
20. desember 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Áfram neyðarstig á Seyðisfirði og hættustig á Eskifirði með rýmingum
Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi:
Áfram óvissustig á Austulandi vegna skriðuhættu.
Áfram neyðarstig á Seyðisfirði og rýmingar í gildi vegna skriðuhættu.
Áfram hættustig á Eskifirði og rýmingar í gildi vegna skriðuhættu.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Austurlandi funduðu með ofanflóðasérfræðingum Veðurstofu Íslands, aðgerðarstjórn, vettvangsstjórn og fulltrúum mikilvægra innviða og stofnana á Austurlandi nú fyrir hádegi.
Eskifjörður:Hættustig almannavarna í gildi með rýmingum á ákveðnu svæði á Eskifirði. Unnið er að mælingum á Oddskarðsvegi og staðan endurmetin síðar í dag.
Fjöldahjálparstöð í Kirkju- og menningarhúsinu að Dalbraut 2 er opin í dag.
Seyðisfjörður:Neyðarstig almannavarna í gildi með rýmingum. Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands ásamt samstarfsaðilum vinna að frekari mælingum og athugunum á skriðusvæðum á Seyðisfirði. Þar verða skilgreind hættuvæði auk þeirra sem eru talin örugg. Aðgerðarstjórn mun svo í framhaldi ákveða hvernig best sé að framkvæma heimför íbúa á örugg svæði. Stefnt er að því að kynna það skipulag formlega milli klukkan 14 og 15 í dag.
Fjöldahjalparstöð er opin í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum er opin í dag
Ljósmynd/ríkislögreglustjóri
Ljósmynd/ríkislögreglustjóri