Fara beint í efnið

2. mars 2022

Aflaskráning

Fiskistofa vekur athygli á því að frá og með 1. mars nk. mun Fiskistofa ekki lengur útvega afladagbækur eða reka stafrænt aflaskráningarforrit og frá og með 1. apríl nk. verður það óvirkt.

Fiskistofa logo

Fiskistofa vekur athygli á því að frá og með 1. mars nk. mun Fiskistofa ekki lengur útvega afladagbækur eða reka stafrænt aflaskráningarforrit og frá og með 1. apríl nk. verður það óvirkt.

Öllum er frjálst að skrifa hugbúnað sem getur skilað aflaupplýsingum til  Fiskistofu.

Einnig má benda á að Trackwell hefur þróað smáforrit þar sem hægt er að færa aflaskráningu og senda til Fiskistofu. Þeir aðilar sem vilja nýta sér þann möguleika er bent á að sækja það forrit eftir 1. mars nk. en fyrir 1. apríl.