Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. nóvember 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir árið 2012

Fleiri afbrot komu til kasta lögreglu árið 2012 heldur en árið 2011 en heildarfjöldi brota yfir allt landið fór úr 57.021 í 61.837 sem þýðir 8,4% aukningu á milli ára. Þegar litið er til meðalfjölda brota síðustu þriggja ára á undan má sjá að meðalfjöldinn var 68.438 brot á ári. Þetta þýðir að þrátt fyrir fjölgun brota árið 2012 miðað við árið á undan voru brotin 9,6% færri en þau hafa verið að meðaltali síðustu þrjú ár á undan.

Fíkniefnabrotum fjölgaði hlutfallslega mest allra brota þegar miðað er við meðalfjölda brota á árunum 2009 til 2011. Ef miðað er við sama tímabil má sjá fjölgun í öllum undirflokkum kynferðisbrota, það er blygðunarsemisbrotum, nauðgunum, brotum sem tengjast klámi/barnaklámi, kynferðisbrotum gegn börnum, kynferðislegri áreitni og vændi.

Umferðarlagabrotum fjölgaði frá árinu 2011 til 2012 og er það í fyrsta sinn frá árinu 2007 sem brotum í þessum brotaflokki fjölgar milli ára.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Afbrotatölfræði 2012. Skýrslan er gefin út af ríkislögreglustjóra og þar eru birtar staðfestar tölur um afbrot fyrir allt landið árið 2012. Gögn fyrir skýrsluna voru tekin út í maí 2013 en það er gert til að tryggja að rannsókn mála frá árinu 2012 sé að mestu lokið hjá lögreglu þegar úttekt fer fram.Skýrslan er aðeins gefin út á rafrænu formi. Hún er aðgengileg hér og á vef ríkislögreglustjóra, www.rls.is, undir liðnum Tölfræði/rannsóknir á vinstri valrönd.

Ítarlegri tölfræðiupplýsingar fyrir árið 2012 og aftur til ársins 2008 má sjá í töflunni Allir brotaflokkar – Tafla 2012. Tölur frá árunum 2001 til 2012 verða svo birtar á töfluformi á vef ríkislögreglustjóra á næstu dögum/vikum.