Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. maí 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Af helgarvaktinni

Tuttugu og þrír voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimmtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Hafnarfirði og þrír í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, tíu á laugardag, átta á sunnudag og fjórir aðfaranótt mánudags. Þetta voru sautján karlar á aldrinum 21-48 ára og sex konur, 19-43 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og fjórir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Af öðrum verkefnum helgarvaktarinnar má nefna að sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu, þar af ein alvarleg. Þá var farið í fjögur útköll vegna heimilisofbeldis og tvö vegna ráns. Loks má nefna að níu tilkynningar bárust um innbrot í umdæminu.