13. apríl 2010
13. apríl 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Aðvörun við gosstöðvar
Lögreglan á Hvolsvelli vill vekja á því athygli að töluverða brennisteinsmengun leggur frá gosstöðvunum við Fimmvörðuháls, ennfremur er hætta á að eiturgas leggi frá nýrunnu hrauninu.
Því er brýnt fyrir þeim sem leggja á ferðir að gosstöðvunum að fara gætilega og virða eins kílómeters bannsvæði við gosstöðvarnar.