Fara beint í efnið

15. maí 2026

Aðila frávísað og áritun ógild

Í vikunni höfðu landamæraverðir lögreglunnar á Suðurnesjum afskipti af aðila sem kom með flugi frá London. Aðilinn var með útgefna áritun vegna fyrirhugaðrar dvalar á Íslandi.

Við nánari skoðun kom í ljós að aðilinn hugðist ekki dvelja á Íslandi heldur á Lettlandi. Vaknaði því grunur um að aðilinn hefði fengið útgefna áritun á fölskum forsendum. Var áritunin því ógild og aðilanum frávísað þar sem hann uppfyllti ekki skilyrði til dvalar á Schengen svæðinu.

Þess má geta að málum af þessum toga hefur fjölgað. Alls komu 83 slík tilvik upp árið 2025 en eru orðin rúmlega 70 það sem af er þessu ári.