Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. nóvember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Aðgerðum lögreglu í Breiðholti lokið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur mönnum í fjölbýlishúsi í Breiðholti nú síðdegis. Nokkur viðbúnaður var á vettvangi vegna málsins, en grunur var um að einn mannanna væri vopnaður. Svo reyndist hins vegar ekki vera. Enginn var handtekinn í þessum aðgerðum lögreglu.