21. mars 2025
21. mars 2025
Aðgengisverðlaun ÖBÍ til Ísland.is
Verkefnið Fyrir Grindavík, á vegum Ísland.is, vann til aðgengisverðlauna á Íslensku vefverðlaununum.


Á vefnum Fyrir Grindavík eru ýmsar umsóknir aðgengilegar, allt frá umsókn viðbragðsaðila um aðgang að bænum til umsókna um kaup á íbúðarhúsnæði.
Það frábæra starf ÖBÍ við að vekja athygli á og berjast fyrir aðgengi að stafrænum heimi er til mikillar fyrirmyndar og virkilega ánægjulegt að þau hafi valið verkefni Ísland.is: Fyrir Grindavík, sem sigurvegara í aðgengismálum.
Það fyllir okkur stolti og þakklæti að fá viðurkenningu frá ÖBÍ fyrir Ísland.is fyrir Grindavík á SVEF verðlaunahátíðinni. Vefurinn var settur upp á mettíma fyrir Grindvíkinga þegar jarðhræringar hófust og eru vettvangur til upplýsingamiðlunar.
Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.
Verkefni Ísland.is hlutu sömuleiðis tilnefningu í eftirfarandi flokkum en mikill heiður að hljóta tilnefningu.
Tilnefningarnar voru:
Ísland.is appið í flokknum App ársins
Ísland.is í flokknum Opinber vefur ársins
Ísland.is í flokknum Efnis- og fréttaveita ársins
Stafrænt pósthólf í flokknum Opinber vefur ársins
Stafrænt pósthólf í flokknum Tækninýting ársins
Fyrir Grindavík sem Samfélagsvefur ársins
Stafræn umsókn um fæðingarorlof sem Stafæn lausn ársins
70 vefir, eða stafrænar lausnir, í 14 flokkum eru tilnefnd í ár. Fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vef- og tækniiðnaðurinn á Íslandi kemur að.
Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi en það er SVEF sem stendur fyrir verðlaununum. Íslensku vefverðlaunin voru veitt í 24. skipti en það eru Samtök vefiðnaðarins (SVEF), fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi, sem standa fyrir verðlaununum.
Nánari upplýsingar um SVEF og íslensku vefverðlaunin er að finna á vefsíðu SVEF.