Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. nóvember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Að koma munum til skila

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að koma munum, sem lagt var hald á við húsleit í Mosfellsbæ í gær, aftur í réttar hendur og er viðbúið að það taki nokkurn tíma. Jafnframt eru þeir sem hafa orðið fyrir innbroti/þjófnaði á umræddu svæði undanfarið, OG HAFA EKKI ÁÐUR TILKYNNT ÞAÐ TIL LÖGREGLUNNAR, beðnir um að hafa samband með tölvupósti á netfangið stella.mjoll@lrh.is Í þeim pósti þurfa að koma fram upplýsingar um brotavettvang, tímasetningu og hverju var stolið. Fólk er beðið um að sýna biðlund á meðan unnið verður úr þessum upplýsingum.