10. september 2009
10. september 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ábending frá ríkislögreglustjóra vegna fjölgunar innbrota að undanförnu
Vegna mikillar fjölgunar innbrota að undanförnu hvetur ríkislögreglustjóri almenning til að huga vandlega að öryggi heimila sinna og gera viðeigandi ráðstafanir til að torvelda innbrot. Í því samhengi minnir ríkislögreglustjóri á mikilvægi nágrannavörslu. Mikilvæg forvörn felst í samvinnu og samheldni fólksins í landinu.
Hið sama gildir um eigendur og stjórnendur fyrirtækja. Samvinnu og árvekni er einnig þörf á því sviði.
Sú óæskilega þróun sem orðið hefur hér á landi kemur ekki á óvart og er í samræmi við mat lögreglu.
Í matsskýrslu ríkislögreglustjórans um skipulagða glæpastarfsemi sem gerð var opinber í febrúarmánuði sl. segir m.a. um skipulögð innbrot og þjófnaði:
Fyrir liggur að innlendir og erlendir hópar stunda skipulögð innbrot og þjófnaði hér á landi. Greiningardeild telur að slík starfsemi verði áfram áberandi og viðbrögð við henni ofarlega á verkefnalista lögreglu. Vitað er að erlendir afbrotamenn koma gagngert til Íslands í þeim tilgangi að skipuleggja og fremja þjófnaði. Þá eru fyrir hendi vísbendingar um að þessir aðilar kúgi fé út úr samlöndum sínum. Markaður fyrir stolnar vörur mun stækka í kjölfar efnahagshrunsins.
Í sömu skýrslu frá árinu 2008 segir m.a. um þetta atriði:
Allar upplýsingar og vísbendingar greiningardeildar ríkislögreglustjóra benda til þess að skipulögð glæpastarfsemi færist í vöxt á Íslandi og gerist sífellt fjölbreytilegri. Þetta á ekki síst við um þá starfsemi, sem erlendir glæpahópar er rætur eiga að rekja til Austur-Evrópu, halda uppi hér á landi. Fyrir liggur að austur-evrópskir ríkisborgarar eru fluttir inn hingað til lands ýmist til skemmri dvalar eða lengri í þeim tilgangi einum að fremja afbrot. Vísbendingar eru um að þessi starfsemi sé mun umfangsmeiri en flestir höfðu ætlað. “
Fagna ber þeim góða árangri sem lögregla hefur náð að undanförnu við að upplýsa skipulögð innbrot þjófaflokka. Ríkislögreglustjóri minnir hins vegar á mikilvægi þess að almenningur og stjórnendur fyrirtækja haldi vöku sinni gagnvart glæpastarfsemi af þessu tagi.