Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. nóvember 2025

A2 hæfnispróf fyrir drónaflug í desember 2025

Næsta A2 hæfnispróf fyrir drónaflug verður haldið 10. desember hjá Samgöngustofu.

Næsta A2 hæfnispróf fyrir drónaflug verður haldið 10. desember næstkomandi kl. 10:00 í húsakynnum Samgöngustofu, Ármúla 2, 108 Reykjavík.

Skráning er opin á prof.icetra.is, síðasti skráningardagur er 30. nóvember. Prófgjaldið er 7.210 kr. og greiðist við skráningu.

Vinsamlegast athugið:

  • Til að öðlast A2 réttindi þarf fyrst að hafa lokið A1/A3 hæfnisprófinu.

  • Til undirbúnings fyrir A2 prófið er mælt með yfirferð námsefnis á flydrone.is.

  • Verklegri þjálfun fyrir A2 þarf að vera lokið áður en réttindin eru skráð á skírteinið. Þessa þjálfun er hægt að framkvæma sjálfstætt með því að fylgja leiðbeiningum á flydrone.is.

  • Mælt er með því að skrá sig inn á flydrone.is fyrirfram og ganga úr skugga um að aðgangurinn virki vandræðalaust.

  • Athugið að A2 réttindi eru eingöngu nauðsynleg ef ætlunin er að fljúga C2-merktum dróna í undirflokki A2, þ.e. nálægt fólki í þéttbýli.

Fyrirspurnir varðandi prófið má senda á netfangið flydrone@samgongustofa.is.