Fara beint í efnið

14. júní 2018

Verum klár þegar sólin skín og notum sólarvörn

Nú er kominn sá árstími þegar fólk flykkist út til að njóta útiveru og sólar. Við erum bjartsýn á að fá að njóta þeirra áður en langt líður.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Nú er kominn sá árstími þegar fólk flykkist út til að njóta útiveru og sólar. Sólin gefur okkur kærkomna birtu og hlýju en einnig útfjólubláa geislun sem getur skaðað okkur ef við förum ekki varlega.

Húð barna er miklu viðkvæmari en húð fullorðinna. Því er það sérstaklega mikilvægt að vernda húð þeirra og koma í veg fyrir að þau brenni í sólinni.Ef farið er út í sólina um miðjan dag er besta vörnin föt og hattur, jafnt fyrir börn og fullorðna, en sólaráburð má bera á þau svæði sem eru ber.

Að njóta sólar og útiveru þarf ekki að vera mikil áhætta ef við fylgjum nokkrum einföldum ráðum og notum heilbrigða skynsemi til að forðast það að brenna í sólinni.

Í skjalinu Verum klár í sólinni eru nokkrar ábendingar um hvernig við getum varist hættulegum geislum sólarinnar á suðrænum slóðum en gleymum ekki að sökum þess hve tært andrúmsloftið er á Íslandi getur útfjólublá geislun frá sólinni valdið sólbruna á skömmum tíma.

Sjá nánar: Verum klár í sólinni

Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri