Fara beint í efnið

18. febrúar 2020

Úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2020

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag rúmum 90 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 147 verkefna og rannsókna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag rúmum 90 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 147 verkefna og rannsókna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum.

Sjá lista yfir verkefni og styrkþega.

Áhersla er lögð á að styrkja aðgerðir sem miða m.a. að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna, áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, forvarnir og kynheilbrigði. Við mat á umsóknum fyrir árið 2020 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust. Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 og lýðheilsustefnu heilbrigðisráðuneytisins.

Athöfin hófst með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, þá flutti formaður Lýðheilsusjóðs, Kristín Heimisdóttir einnig ávarp.

Á meðal þeirra sem hlutu styrk er m.a. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, fyrir heilsu- og hvatningarverkefni sem höfða til allra aldurshópa, frá leikskólaaldri og upp á efri ár, Ársæll Arnarsson sem fær styrk fyrir þátttöku Íslands í alþjóðlegum rannsóknum á heilsu og líðan unglinga, Rannsóknir og greining fyrir verkefnið: Rafrettunotkun ungs fólks á Íslandi - ítarleg greining áhrifaþátta og umhverfis. Einnig fær fjöldi sveitafélaga og sambönd á vegum þeirra styrki til ýmiss konar lýðheilsuverkefna.