Fara beint í efnið

28. mars 2018

Úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2018

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag 96 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 167 verkefna og rannsókna.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag 96 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 169 verkefna og rannsókna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum.

Áhersla er lögð á að styrkja aðgerðir sem miða m.a. að því að efla geðheilsu, árangursríkar áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir og forvarnir sem tengjast kynheilbrigði. Við mat á umsóknum fyrir árið 2018 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð Embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust. Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 og lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins.

Athöfnin hófst með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, þá flutti formaður Lýðheilsusjóðs, Kristín Heimisdóttir einnig ávarp. Tómas Torfason framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi sagði m.a. frá verkefnunum Stelpur í stuði og Gauraflokkur í Vatnaskógi sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum en um er að ræða sumarbúðir fyrir börn með ADHD og skyldar raskanir.

Meðal verkefna sem hljóta styrk úr Lýðheilsusjóði 2018 eru verkefnið Hugarró – núvitund og hugleiðsla í Leikskólanum Hulduheimum í Árborg, Vinaliðaverkefnið í Rimaskóla, Heilsueflandi samfélag í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Menntavísindasvið Háskóla Íslands fyrir evrópsku vímuefnarannsóknina ESPAD.