Fara beint í efnið

26. júní 2020

Tvö innanlandstilfelli staðfest

Tvö tilfelli í viðbót hafa nú verið staðfest innanlands af COVID-19. Í morgun greindist annað tilfelli sem talið er að tengist því sem staðfest var í gær. Fyrra tilfellið er upprunnið erlendis en hið seinna innanlands. Er þetta fyrsta innanlandssmitið síðan um miðjan maí. Áætlað er að yfir 200 manns þurfi að fara í sóttkví. Unnið er að smitrakningu og er málið meðhöndlað sem hugsanleg hópsýking á höfuðborgarsvæðinu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Tvö tilfelli í viðbót hafa nú verið staðfest innanlands af COVID-19. Í morgun greindist annað tilfelli sem talið er að tengist því sem staðfest var í gær. Fyrra tilfellið er upprunnið erlendis en hið seinna innanlands. Er þetta fjórða innanlandssmitið síðan um miðjan maí. Áætlað er að yfir 200 manns þurfi að fara í sóttkví. Unnið er að smitrakningu og er málið meðhöndlað sem hugsanleg hópsýking á höfuðborgarsvæðinu.

Unnið er samkvæmt sams konar verklagi og gert var þegar hópsýkingar áttu sér stað í Vestmannaeyjum, Bolungarvík og á Hvammstanga. Í undirbúningi er skimun á mjög stórum hópi fólks sem tengist málinu í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Íslenska erfðagreiningu.

Sóttvarnalæknir og almannavarnir brýna fyrir almenningi að huga að einstaklingsbundnum smitvörnum og ítreka tilmæli til þeirra Íslendinga sem koma frá útlöndum að fara með gát fyrst um sinn, jafnvel þótt sýnataka hafi verið neikvæð í landamæraskimun. Áréttað er að krafa um sóttkví í 14 daga heldur gildi sínu óháð niðurstöðu ef farið er í sýnatöku á meðan á sóttkví stendur.