Fara beint í efnið

16. maí 2019

Tóbakslaus bekkur lokaverkefni 2018-2019. Úrslit

Úrslit liggja nú fyrir í samkeppninni Tóbakslaus bekkur skólaárið 2018-19, sem haldin er meðal tóbakslausra 7., 8. og 9. bekkja í skólum landsins. Tíu bekkir frá átta skólum unnu til verðlauna.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Úrslit liggja nú fyrir í samkeppninni Tóbakslaus bekkur skólaárið 2018-2019 sem haldin er meðal tóbakslausra 7., 8. og 9. bekkja í skólum landsins. Tíu bekkir frá jafnmörgum skólum sem sendu inn lokaverkefni unnu til verðlauna. Verðlaunaupphæðin nemur 5.000 krónum fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum sem þeim er frjálst að ráðstafa að vild.

Samtals 230 bekkir víðs vegar um landið tóku þátt í keppninni að þessu sinni. Á skólaárinu þurftu bekkirnir að staðfesta fimm sinnum að þeir væru tóbakslausir og voru þá með í útdrætti um vinninga. Vinningarnir voru húfur en auk þess fengu allir þátttakendur spilastokk að gjöf.

Úrslit

Eftirtaldir bekkir hljóta verðlaun:

Giljaskóli
7. HR
Akureyri

Grunnskóli Bolungarvíkur
7. bekkur
Bolungarvík

Hamraskóli
7. bekkur
Reykjavík

Heiðarskóli
7. EN
Reykjanesbær

Hlíðaskóli
7. AS
Reykjavík

Hrafnagilsskóli
7. bekkur
Eyjafjarðarsveit

Kelduskóli
7. bekkur
Reykjavík

Langholtsskóli
7. ÁS
Reykjavík

Sunnulækjarskóli
7. UBH
Árborg

Vogaskóli
7. bekkur
Reykjavík

Til að eiga möguleika á fyrstu verðlaunum þurftu nemendur bekkjanna að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Nánari útfærsla var ekki skilgreind til að þrengja ekki hugmyndir að verkefnum en beðið var um að þeim væri skilað á rafrænu formi.

Við gerð margra verkefna var leitað út fyrir skólastarfið og þannig stuðlað að samvinnu, miðlun og öflun þekkingar um skaðsemi tóbaksnotkunar.

Fjöldamörg áhugaverð verkefni bárust og má sem dæmi nefna leiknar stuttmyndir, fræðslufyrirlestra, frumsamin lög og veggspjöld.

Embætti landlæknis óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum kennurum og nemendum fyrir þeirra framlag og ánægjulegt samstarf.

Viðar Jensson, verkefnisstjóri