Fara beint í efnið

26. maí 2020

Tóbaks- og rafrettulaus bekkur. Úrslit 2019-2020.

Úrslit liggja nú fyrir í samkeppninni Tóbaks- og rafrettulaus bekkur skólaárið 2019-2020 sem haldin er meðal tóbakslausra 7., 8. og 9. bekkja í skólum landsins. Samtals 200 bekkir um allt land tóku þátt í keppninni að þessu sinni.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Úrslit liggja nú fyrir í samkeppninni Tóbaks- og rafrettulaus bekkur skólaárið 2019-2020 sem haldin er meðal tóbakslausra 7., 8. og 9. bekkja í skólum landsins. Samtals 200 bekkir um allt land tóku þátt í keppninni að þessu sinni.

Verðlaunaupphæðin nemur 5.000 krónum fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum sem þeim er frjálst að ráðstafa að vild. Á skólaárinu þurftu bekkirnir að staðfesta fimm sinnum að þeir væru tóbakslausir og voru þá með í útdrætti um vinninga sem voru húfur. Allir þátttakendur í samkeppninni fengu auk þess minnisbók.

Úrslit

Eftirtaldir bekkir hljóta verðlaun:

Háaleitisskóli

7. JH

Reykjanesbær

Kelduskóli

7. bekkur

Reykjavík

Hamraskóli

7. bekkur

Reykjavík

Rimaskóli

7. MMR/GD

Reykjavík

Foldaskóli

7. SK

Reykjavík

Borgarhólsskóli

7. bekkur

Húsavík

Tálknafjarðarskóli

9. bekkur

Tálknafjörður

Myllubakkaskóli

7. bekkur

Reykjanesbær

Landakotsskóla

7. bekkur

Reykjavík

Vogaskóli

7. bekkur

Reykjavík

Til að eiga möguleika á fyrstu verðlaunum þurftu nemendur bekkjanna að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Nánari útfærsla var ekki skilgreind til að þrengja ekki hugmyndir að verkefnum en beðið var um að þeim væri skilað á rafrænu formi.

Við gerð margra verkefna var leitað út fyrir skólastarfið og þannig stuðlað að samvinnu, miðlun og öflun þekkingar um skaðsemi tóbaksnotkunar.

Mörg áhugaverð verkefni bárust og má sem dæmi nefna leiknar stuttmyndir, fræðslufyrirlestra, frumsamin lög og veggspjöld.

Embætti landlæknis óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum kennurum og nemendum fyrir þeirra framlag og ánægjulegt samstarf.

Viðar Jensson, verkefnisstjóri