Fara beint í efnið

6. mars 2019

Tillögur að breyttu skipulagi skimana fyrir krabbameinum til framtíðar

Embætti landlæknis og skimunarráð hafa skilað heilbrigðisráðherra tillögum að breyttu skipulagi á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Landlæknir telur framtíðarlausn á fyrirkomulagi þessara mála nauðsynlega svo skipuleggja megi skimanir til langs tíma.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis og skimunarráð hafa skilað heilbrigðisráðherra tillögum að breyttu skipulagi á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Landlæknir telur framtíðarlausn á fyrirkomulagi þessara mála nauðsynlega svo skipuleggja megi skimanir til langs tíma.

Alma D. Möller landlæknir og Thor Aspelund, formaður skimunarráðs, hafa kynnt tillögurnar fyrir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Skimunarráð er ráðgefandi fyrir Embætti landlæknis og var skipað í apríl á liðnu ári í samræmi tillögu ráðgjafarhóps sem vann að mótun íslenskrar krabbameinsáætlunar.

Með tillögunum er verið að færa skipulag skimana nær því skipulagi sem mælt er með í leiðbeiningum Evrópusambandsins um skimanir. Tillögurnar fela meðal annars í sér að sett verði á fót sérstök Stjórnstöð skimunar með víðtækt hlutverk sem felist meðal annars í því að skipuleggja og semja um framkvæmd skimana og sjá um innkallanir og upplýsingagjöf til þeirra sem boðaðir eru í skimun. Stjórnstöðin myndi jafnframt sinna rekstri Krabbameinsskrár í umboði landlæknis.

Miðað er við að skimanir verði hluti af almennri og opinberri heilbrigðisþjónustu. Horft er til þess að heilsugæslan fái þar hlutverk í ljósi nálægðar við notendur heilbrigðisþjónustunnar og þekkingarinnar á almennum forvörnum. Að mati landlæknis og skimunarráðs er þetta til þess fallið að styrkja skipulag, utanumhald og eftirlit skimana. Enn fremur er lagt til að sett verði löggjöf um skimanir til að setja verkefninu skýrari farveg, skapa því stöðugleika og tryggja öryggi þátttakenda, gæðaeftirlit og fjármögnun.

Skimunarráð tekur meðal annars fram í áliti sínu að það mæli með fyrirkomulagi þar sem ákvarðanir eru teknar í gagnsæju ferli, niðurstöður séu opnar og birtar reglulega. Ábyrgð á skimun sé samfélagsleg og njóti víðtæks stuðnings.

Í samræmi við tillögurnar skipar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra verkefnastjórn um framkvæmd tillagnanna undir forystu heilbrigðisráðuneytisins með aðkomu Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands, Landspítala Krabbameinsskrár, Embættis landlæknis og e.t.v. fleiri aðila. Með tillögum er stigið skref í átt að innleiðingu íslenskrar krabbameinsáætlunar og falla tillögurnar og markmið þeirra vel að heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og þingsályktun um hana sem er til umfjöllunar á Alþingi.