Fara beint í efnið

1. október 2020

Tækniskólinn handhafi Gulleplisins 2020

Gulleplið 2020 var afhent í 10. sinn við hátíðlega athöfn í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði í dag.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Gulleplið 2020 var afhent í 10. sinn við hátíðlega athöfn í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði í dag. Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin sem Tækniskólinn hlaut að þessu sinni. Það var samdóma álit dómnefndar að Tækniskólinn stæði öðrum framar með nýjum áherslum er lúta að skólatengslum, þ.e. tengslum nemenda við aðra nemendur og starfsfólk skólans.

Verðlaunin eru veitt þeim sem skóla sem skarar framúr á fyrirfram ákveðnum þætti í skólastarfi sem í ár var skólatengsl. Skólastjóri Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir, sagði frá aðgerðum skólans til að efla jákvæð skólatengsl og nefndi m.a. starf skólans með hópum sem teljast vera í krefjandi aðstæðum og nálgunum sem ná til allra óháð aldri og staðsetningu. Skólastjórn skólans hefur lagt áherslu á að efla skólatengsl nemenda með markvissum og áhugaverðum nálgunum undanfarin misseri. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins með tæplega 3.000 nemendur og er starfandi á 8 mismunandi starfsstöðvum.

Þá voru einnig veitt heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi heilsueflingarstarf í framhaldsskóla við sömu athöfn. Flensborgarskólinn í Hafnarfirði hlaut þau verðlaun en skólinn hefur unnið ötullega að heilsueflingu síðastliðin 10 ár og aldrei látið deigan síga. Með áherslu sinni á heilsueflingu hefur skapast heilsueflandi menning í skólanum sem speglast meðal annars í auknu námsframboði tengdu heilsu og vellíðan og góðu utanumhaldi um nemendur.  Þá sögðu skólameistari og nemandi Flensborgarskólans frá nýju og áhugaverðu  þróunarverkefni innan skólans, Hámarki, þar sem nemendur fá stuðning og fræðslu til að hámarka heilsu sína og vellíðan.

Alma D. Möller, landlæknir, var með ávarp í byrjun athafnar þar sem hún fjallaði um mikilvægi skólatengsla og vísaði í aðgerðaráætlun stjórnvalda um geðrækt í skólum. Þá var einnig greint frá áherslum Gulleplisins 2021 en þá verður lögð áhersla á hvernig framhaldsskólar styðji við félags- og tilfinningafærni nemenda.

Við óskum Tækniskólanum og Flensborgarskóla innilega til hamingju með verðlaunin og hvetjum þau ásamt öðrum framhaldsskólum áfram til góðra verka.

Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi framhaldsskóla (HEF) sh@landlaeknir.is