Fara beint í efnið

21. febrúar 2019

Starfsáætlun 2019-2020 er komin út

Starfsáætlun Embættis landlæknis fyrir árin 2019-2020 er komin út á vef embættisins. Starfsáætlunin dregur saman helstu áherslur í fjölbreyttu starfi embættisins fram til ársins 2020.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Starfsáætlun Embættis landlæknis fyrir árin 2019-2020 er komin út á vef embættisins.

Starfsáætlunin dregur saman helstu áherslur í fjölbreyttu starfi embættisins fram til ársins 2020. Settar eru fram aðaláherslur á fjórum meginsviðum og skilgreindar aðgerðir ársins. Þessi verkefni snerta þjónustu embættisins við almenning, fagfólk og stjórnvöld og allt innra starf þess.

Jafnframt er birtur listi yfir 20 mælikvarða til að meta stöðu lykilverkefna í árslok 2019 og 2020. Þannig verður starfsáætlunin vegvísir í daglegu starfi embættisins og mælikvarði á árangur þess.

Starfsáætlun 2019-2020

Hér má finna fyrri starfsáætlanir og stefnu Embættis landlæknis á ýmsum sviðum.