Fara beint í efnið

16. október 2020

Smáforrit apóteks til skoðunar hjá Lyfjastofnun og embætti landlæknis

Lyfjastofnun og embætti landlæknis hafa tekið til athugunar smáforrit apóteks sem nýlega var gert aðgengilegt á íslenskum markaði, þar sem viðskiptavinum er meðal annars gert kleift að veita þriðja aðila umboð til að nálgast fyrir sína hönd ávísunarskyld lyf í umræddu apóteki.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Umboðsupplýsingar ekki aðgengilegar öllum apótekum

Lyfjastofnun og embætti landlæknis hafa tekið til athugunar smáforrit apóteks sem nýlega var gert aðgengilegt á íslenskum markaði, þar sem viðskiptavinum er meðal annars gert kleift að veita þriðja aðila umboð til að nálgast fyrir sína hönd ávísunarskyld lyf í umræddu apóteki. Í ljósi þess að um er að ræða þjónustu sem er í boði hér á landi í fyrsta sinn taka stofnanirnar málið til frekari athugunar.

Vakin er athygli á hluta skilmála smáforritsins, en þar segir að umboðin sem bæði er hægt að veita og nálgast i smáforritinu gilda aðeins í verslunum þess apóteks sem að baki því stendur.

Bent er á að umboð sem hægt er að veita í sama tilgangi á heilsuvera.is, gilda hins vegar í öllum apótekum landsins.

Nánari upplýsingar veitir 

Sunna Brá Stefánsdóttir, verkefnisstjóri, Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna
Netfang sunna@landlaeknir.is